Slíta samkomulaginu um kornútflutning

Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands.
Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands. Mikhail Metzel / SPUTNIK / AFP

Rússar hafa ákveðið að hætta þátttöku sinni í samkomulagi þeirra, Úkraínu, Tyrklands og Sameinuðu þjóðanna um kornútflutning frá Úkraínu vegna drónaárása Úkraínumanna á sjáv­ar­flota Rússa í Svarta­hafi.

Varnarmálaráðuneyti Rússa greinir frá þessu.

Samkomulagið sem um ræðir var undirritað í lok júlí. Var það sagt geta létt á alþjóðlegri mat­vælakreppu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert