Úkraínumenn vilja fá aðgang

Lögreglumenn að störfum skammt frá staðnum þar sem sprengingin varð …
Lögreglumenn að störfum skammt frá staðnum þar sem sprengingin varð í Póllandi. AFP/Wojtek Radwanski

Úkraínsk stjórnvöld hafa beðið um að fá aðgang að staðnum þar sem sprengingin varð í pólsku þorpi í gærkvöldi. Vestrænir embættismenn telja að úkraínskt loftvarnakerfi hafi valdið sprengingunni, sem varð tveimur að bana.

„Úkraína biður um að fá aðgang þegar í stað að staðnum þar sem sprengingin varð,“ sagði framkvæmdastjóri þjóðaröryggis- og varnarráðs Úkraínu, Oleksí Danilov, á Twitter.

Oleksí Danilov.
Oleksí Danilov. AFP/Sergei Supinskí

Hann bætti við að Úkraínumenn væru tilbúnir til að láta af hendi „sönnunargögn“ varðandi ásakanir gegn Rússlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert