Fjöldi látinna kominn upp í 321

Jarðskjálftinn reið yfir á mánudaginn.
Jarðskjálftinn reið yfir á mánudaginn. AFP/Adek Berry

Alls hafa 321 einstaklingar látið lífið vegna jarðskjálftans sem reið yfir eyjuna Jövu í Indónesíu á mánudaginn. Skjálftinn var af stærð 5,6. 

Mesta mannfallið varð í bænum Cianjur en þar féllu skriður og byggingar hrundu.

Rúmlega 62 þúsund hús hafa orðið fyrir skemmdum og 73 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert