Stefnir í heitasta ár frá upphafi

Skíðagöngumaður æfir sig á endurunnum snjó í þorpinu Savoyard í …
Skíðagöngumaður æfir sig á endurunnum snjó í þorpinu Savoyard í Bessans í frönsku Ölpunum í byrjun nóvember. AFP/Jean-Philippe Ksiazek

Árið í ár er það heitasta sem mælst hefur í Frakklandi, að því er kemur fram í tilkynningu frá frönsku veðurstofunni.

Hiti var víða mjög hár í hitabylgjum í Frakklandi frá því í maí og fram í október. Því fylgdu meðal annars skógareldar í norðvestur Brittany.

Áætlað er að meðalhiti í ár verði á milli 14,2 gráðum og 14,6 gráðum, eftir því hvert hitastigið verður í desember. Heitasta árið í Frakklandi hingað til var árið 2020 en þá var meðalhitinn 14,07 gráður.

Ef spár Sameinuðu þjóðanna fyrir í árið í ár rætist verður meðalhiti hvers einasta árs eftir árið 2015 heitara heldur en öll ár þar á undan síðan mælingar hófust.

Í skýrslu frá Alþjóða veðurfræðistofnuninni í nóvember kemur fram að hiti á jörðinni hafi hækkað um 1,1 gráðu síðan í lok 19. aldar, og að um það bil helmingur þeirrar hitaukningar hafi orðið á síðustu þremur áratug.

Um 95% hitaaukningarinnar er vegna gróðurhúsalofttegunda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert