Mannfall, rafmagns- og vatnsleysi eftir árásina

Bygging brennur eftir sprengjuárás á borgina Bakhmút í gær. Myndir …
Bygging brennur eftir sprengjuárás á borgina Bakhmút í gær. Myndir hafa ekki borist frá árásinni í dag. AFP

Að minnsta kosti tveir eru látnir í Saporisjía-héraði í Úkraínu eftir umfangsmikla eldflaugaárás Rússa sem gerð var fyrr í dag.

Rafmagns- og vatnslaust er í fjölda borga landsins eftir að eldflaugum tók að rigna, en fullyrt var fyrr í dag að þær gætu verið fleiri en hundrað talsins.

Áhrifin ekki enn ljós

Loftvarnaflautur hafa ómað um alla Úkraínu undanfarnar klukkustundir eftir að ljóst varð að Rússar hefðu hafið enn eina árásina.

Embættismenn í höfuðborginni Kænugarði segja loftvarnakerfi hafa hrundið árásinni að einhverju leyti.

Ekki er enn ljóst hversu mikið mannfall og hversu víðtækar afleiðingar árásin kemur til með að hafa í för með sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert