Þurfa 120 milljarða í neyðaraðstoð

Selenskí í mars síðastliðnum.
Selenskí í mars síðastliðnum. AFP/Sergei Supinskí

Úkraína þarf á 800 milljónum evra, eða um 120 milljörðum króna, að halda í neyðaraðstoð vegna orkuinnviða í landinu.

„Auðvitað er þetta mjög há upphæð, en kostnaðurinn er mun minni en kostnaðurinn við mögulegt rafmagnsleysi,“ sagði Selenskí í gegnum fjarfundarbúnað á ráðstefnu í París, höfuðborg Frakklands.

„Ég vona að þessi ákvörðun verði tekin með þetta í huga,“ bætti hann við.

Fundað er um alþjóðlegt hjálparstarf á ráðstefnunni. 

Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði að hún væri haldin „til að koma almenningi í Úkraínu í gegnum veturinn“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert