Holland og Portúgal skikka Kínverja í próf

Kínverskir ferðalangar við Covid-prófunarstöð á flugvelli í Kóreu.
Kínverskir ferðalangar við Covid-prófunarstöð á flugvelli í Kóreu. AFP

Ríkisstjórnir Hollands og Portúgal tilkynntu í dag að þær myndu krefja ferðamenn sem væru að koma frá Kína til þess að vísa fram neikvæðu Covid-prófi við komuna til landsins. 

Þau slást þannig í hóp með um tólf öðrum ríkjum sem hafa sett þessa sömu reglu, þar á meðal Bandaríkin, Þýskaland, Frakkland og Ítalía.

Schipol-flugvöllurinn sérlega útsettur

Heilbrigðisráðuneyti Hollands segir skilyrðið, sem tekur gildi á þriðjudag, vera í samræmi við tilmæli Evrópusambandsins. 

Ég tel það mikilvægt fyrir okkur að setja þessar takmarkanir sem hluta af sam-Evrópskum aðgerðum gegn útbreiðslu veirunnar, hefur AFP-fréttaveitan eftir Ernst Kuipers, heilbrigðisráðherra Hollands.

Kuipers benti einnig á að Schipol-flugvöllurinn í Amsterdam væri einn stærsti flugvöllur Evrópu og sérstaklega fjölmennur í ljósi þess hve margir millilenda á honum.

Portúgölsku reglurnar taka gildi strax á morgun.

Tilmæli heilbrigðismálayfirvalda Evrópusambandsins komu á miðvikudaginn þar sem þeim tilmælum var beint til aðildarríkja að sambandið mældi sterklega með því að krefja komufarþega frá Kína um framvísun neikvæðs prófs á flugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert