Forseti Brasilíu: „fasista ofstækismenn“

Forsetinn fordæmir innrásirnar.
Forsetinn fordæmir innrásirnar. AFP/Evaristo Sa

Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, fordæmdir innrás stuðningsmanna fyrrverandi forseta landsins, Jair Bol­son­aro, í þinghús, Hæstarétt og forsetahöll Brasilíu. Kallar hann árásarmennina „fasista ofstækismenn“.

Lula tók form­lega við embætti for­seta Bras­il­íu 1. janú­ar, en hann sigraði Bol­son­aro í for­seta­kosn­ing­um í októ­ber.

„Við munum komast að því hverjir þessir skemmdarvargar eru,“ sagði Lula og bætti við að þeir yrðu dregnir til ábyrgðar.

Forsetinn er nú staddur í borginni Araraquara í suðausturhluta Brasilíu sem varð illa úti í flóðum fyrir tveimur vikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert