60 þúsund dauðsföll á einum mánuði

Fólk með grímur í verslunarmiðstöð í Peking, höfuðborg Kína fyrr …
Fólk með grímur í verslunarmiðstöð í Peking, höfuðborg Kína fyrr í vikunni. AFP/Wang Zhao

Kínversk heilbrigðisyfirvöld segja að tæplega 60 þúsund dauðsföll tengd Covid-19 hafi orðið í landinu á rétt rúmum mánuði.

Þetta eru fyrstu tölurnar frá Kínverjum um dauðsföll af völdum veirunnar síðan takmörkunum var aflétt í landinu.

Í desember áður en takmörkunum var aflétt sögðu Kínverjar að nokkrir tugir hafi látist vegna Covid-19 í mánuðinum þrátt fyrir fregnir um að sjúkrahús væru yfirfull og að líkbrennslum hafi fjölgað mjög í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert