Engar líkur á því að finna nokkurn á lífi

Viðbragðsaðilar að störfum í Nepal.
Viðbragðsaðilar að störfum í Nepal. AFP/Prakash Mathema

Viðbragðsaðilar í Nepal héldu í morgun áfram leit sinni í braki flugvélar sem hrapaði með 72 manneskjur um borð í gærmorgun. Ekki er búist við því að neinn finnist á lífi úr því sem komið er, en 68 lík hafa fundist. Búið er að finna flugrita vélarinnar.

Flugvél Yeti Airlines, ATR, hrapaði ofan í gljúfur og við það kviknaði í henni er hún nálgaðist borgina Pokhara. Þetta er mannskæðasta flugslys Nepals frá árinu 1992, eða í um 30 ár.

Í mynd­skeiðum á sam­fé­lags­miðlum sést þegar vél­in flýg­ur yfir íbúðabyggð og snýst skyndi­lega á hliðina.

Hermenn notuðu reipi og sjúkrabörur til að ná líkum úr gljúfrinu, sem er 300 metra djúpt, langt fram á nótt.

AFP

„Við höfum fundið 68 lík til þessa. Við erum að leita að fjórum líkum til viðbótar. Við viljum halda áfram þangað til við náum í líkin,“ sagði embættismaðurinn Tek Bahadur KC.

„Við vonumst eftir kraftaverki en því miður eru engar líkur á því að finna nokkurn á lífi,“ bætti hann við.

Flugöryggi hefur ekki þótt nægilega mikið í Nepal í gegnum tíðina, en í dag er þjóðarsorg í landinu vegna slyssins.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert