Fyrrverandi þingkona skotin til bana

Kona horfir á ljósmynd af Mursal Nabizada á símanum sínum.
Kona horfir á ljósmynd af Mursal Nabizada á símanum sínum. AFP/Wakil Kohsar

Byssumenn skutu til bana fyrrverandi þingkonu og einn af lífvörðum hennar í Kabúl, höfuðborg Afganistans, aðfaranótt sunnudags.

Mursal Nabizada, sem var 32 ára, var þingkona þangað til talíbanar tóku völdin í landinu í ágúst árið 2021.

Að sögn talsmanns lögreglunnar var hún skotin til bana heima hjá sér. Bróðir þingkonunnar særðist einnig í árásinni.

Nabizada var „óttalaus baráttukona fyrir Afganistan“, sagði þingkonan fyrrverandi Mariam Solimankhil á Twitter.

„Hún var sterk kona sem stóð fast á sínu jafnvel þegar hún stóð frammi fyrir hættu,“ bætti hún við.

„Þrátt fyrir að vera boðið að yfirgefa Afganistan ákvað hún að halda kyrru fyrir og berjast fyrir fólkið sitt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert