Grænt ljós frá Þjóðverjum

Þýskir hermenn standa fyrir framan Leopard-skriðdreka síðasta sumar.
Þýskir hermenn standa fyrir framan Leopard-skriðdreka síðasta sumar. AFP/Axel Heimken

Þjóðverjar hafa ákveðið að senda skriðdreka af tegundinni Leopard 2 til Úkraínu, eftir margra vikna þrýsting frá úkraínskum stjórnvöldum og mörgum samherjum þeirra.

Þýsk stjórnvöld ætla að útvega 14 Leopard 2 A6-skriðdreka, auk þess sem þau hafa veitt öðrum Evrópuþjóðum heimild til að senda slíka skriðdreka úr eigin birgðageymslum til Úkraínu.

„Markmiðið er að safna saman á skjótan hátt tveimur skriðdrekadeildum með Leopard 2-skriðdreka fyrir Úkraínu,“ sagði Steffen Hebestreit, talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert