Þýskir skriðdrekar ógni Rússum aftur

Vladimír Pútin fyrr í vikunni.
Vladimír Pútin fyrr í vikunni. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að þýskir skriðdrekar ógni Rússlandi rétt eins og þeir gerðu í síðari heimsstyrjöldinni.

„Þetta er ótrúlegt en satt. Aftur er okkuð ógnað af þýskum Leopard-skriðdrekum,“ sagði Pútín á viðburði í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá sigri Sovétríkjana á Þýskalandi í borginni Stalíngrad í síðari heimsstyrjöldinni.

Pútín bætti við Rússar hefðu „svar“ handa öllum þeim löndum sem ógna þeim.

Pútín er hann minntist sigurs Sovétríkjanna yfir Þýskalandi í dag.
Pútín er hann minntist sigurs Sovétríkjanna yfir Þýskalandi í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert