Kafarar sjóhersins endurheimta brakið

Njósnabelgurinn var skotinn niður í gær.
Njósnabelgurinn var skotinn niður í gær. AFP/Haley Walsh

Kafarar bandaríska sjóhersins vinna nú að því að endurheimta brak kínverska njósnaloftbelgsins sem var skotinn niður í gær við strönd Suður-Karólínu. 

Samkvæmt frétt BBC er búist við því aðgerðin taki stuttan tíma svo sérfræðingar geti hafist handa við að rannsaka búnaðinn. Brakið er dreift um 11 kílómetra svæði. 

Fyrr í dag fordæmdu kínversk stjórnvöld aðgerðina og sögðu viðbrögð bandarískra stjórnvalda vera ofsafengin. 

Kín­verj­ar vilja jafn­framt meina að um brot hafi verið að ræða á alþjóðleg­um venj­um. 

Sérfræðingar telja að loftbelgurinn hafi verið sendur til Bandaríkjanna til þess að koma í veg fyrir heimsókn Antony Blinken utanríkisráðherra til Kína um helgina.

Blinken hætti við heimsókn sína vegna njósnabelgsins en hún hefði verið fyrsti formlegi fundur háttsettra ráðamanna ríkjanna tveggja í mörg ár. 

Repúblikanar hafa sakað Joe Biden Bandaríkjaforseta um að hafa bregst skyldum sínum með að leyfa loftbelgnum að svífa óhindrað yfir landið í svo marga daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert