„Ég er svo hrædd“

Talið er að yfir 1.500 manns séu látnir í Tyrklandi …
Talið er að yfir 1.500 manns séu látnir í Tyrklandi og Sýrlandi. AFP/Ilyas Akengin

Tulin Akkaya var rétt svo byrjuð að ná áttum eftir að hún vaknaði við einn stærsta jarðskjálfta sem riðið hefur yfir Tyrkland í nærri öld er annar stór skjálfti gekk yfir. Akkaya reyndi því að leita öryggis úti á götu. 

Byggingar lágu í rúst í borginni Diyarbakir í suðausturhluta Tyrklands, þar sem fjöldi sýrlenskra flóttamanna býr. 

Talið er að yfir 1.500 manns séu látin í Tyrklandi og Sýrlandi. Stærsti skjálft­inn mæld­ist 7,8 að stærð og varð klukk­an 17 mín­út­ur yfir fjög­ur í morg­un. Að minnsta kosti 50 eft­ir­skjálftar hafa fylgt í kjöl­farið og telja yfirvöld að þeir muni halda áfram næstu daga. 

Frá Diyarbakir í suðausturhluta Tyrklands.
Frá Diyarbakir í suðausturhluta Tyrklands. AFP/Ilyas Akengin

„Ég er svo hrædd. Ég fann fyrir eftirskjálftanum mjög vel af því ég bý á efstu hæð,“ sagði Akkaya við AFP-fréttaveituna og á þar við eftirskjálftann sem var 7,5 að stærð. 

„Við hlupum út í skelfingu. Þetta var nánast eins og jarðskjálftinn í morgun. Ég get ekki farið aftur inn í íbúðina mína núna, ég veit ekki hvað gerist næst.“

Rafmagnslaust og gaslaust er nú á svæðinu sem Akkaya býr. 

Fjölda bygginga eru í rúst.
Fjölda bygginga eru í rúst. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert