Þúsundir mótmæla umdeildu frumvarpi

Hörð mótmæli hafa brotist út í Tbílisi, höfuðborg Georgíu, vegna lagafrumvarps sem hefur verið lagt fram á þingi, en gagnrýnendur telja að það muni takmarka frelsi fjölmiðla og vega að stoðum lýðræðisins.

Þúsundir gengu fylktu liði til að mótmæla frumvarpinu sem hefur nú farið í gegnum fyrstu umræðu á þinginu. Hafa mótmælendur m.a. kastað bensínsprengjum í átt að lögreglunni sem reyndi að brjóta mótmælin á bak aftur með táragasi og kraftmiklum vatnsbyssum.

Í myndskeiðum í dreifingu af mótmælunum má sjá mótmælendur falla til jarðar hóstandi, meðan aðrir veifa fána Evrópusambandsins og Georgíu.

Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda.
Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda. AFP/Stringer

Skaðleg áhrif á inngöngu í ESB

Frumvarpið, sem kveður m.a. á um að fjölmiðlar og frjáls félagasamtök með tengsl erlendis verði skráningarskyld, svipar til löggjafar í Rússlandi sem hefur verið notuð til að berjast gegn andófi 

Undanfarin ár hafa stjórnvöld í Georgíu mátt þola mikla gagnrýni vegna ákvarðana sem taldar eru vega að lýðræðinu. Hefur þetta haft skaðleg áhrif á samskipti Tbílisi og Brussel. 

Bandaríska sendiráðið í Georgíu hefur sagt frumvarpið í andstöðu við markmið landsins um að verða hluti af Evrópusambandinu en stjórnvöld í landinu sóttu um aðild skömmu eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Lögreglan hefur notað táragas og vatnsbyssur til að brjóta mótmælin …
Lögreglan hefur notað táragas og vatnsbyssur til að brjóta mótmælin á bak aftur. AFP/Stringer

Forsetinn lýsir yfir stuðningi við mótmælendur

Salome Zourabichvili, forseti Georgíu, hefur lýst yfir stuðningi við mótmælendur og heitið því að beita neitunarvaldi verði lagafrumvarpið samþykkt á þinginu.

„Ég stend með ykkur því þið talið fyrir frjálsri Georgíu sem sér fyrir sér framtíð í Evrópu og mun ekki leyfa neinum að stela þeirri framtíð,“ sagði hún í ávarpi sem var tekið upp á myndskeið þar sem hún er stödd í Bandaríkjunum í opinberri heimsókn.

„Enginn á rétt á því að stela framtíð ykkar,“ bætti hún við og mátti sjá frelsisstyttuna í bakgrunninum.

Mótmælin fyrir framan þinghúsið í Tbilisi.
Mótmælin fyrir framan þinghúsið í Tbilisi. AFP/Stringer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert