Þriðja kjörtímabil Xi Jinping hafið

Xi Jinping sver embættiseið í morgun vegna þriðja kjörtímabils sín …
Xi Jinping sver embættiseið í morgun vegna þriðja kjörtímabils sín sem forseti Kína. AFP/Noel Celis

Þriðja kjörtímabil Xi Jinping sem forseti Kína hófst formlega í dag. Í október síðastliðnum tryggði hann sér forystu í Kommúnistaflokknum til næstu fimm ára.

Xi hefur legið undir gagnrýni eftir að fjöldi fólks hefur látist af völdum kórónuveirunnar í landinu í kjölfar afnáms takmarkana.

Xi Jinping, þriðji frá vinstri neðst á myndinni, gengur til …
Xi Jinping, þriðji frá vinstri neðst á myndinni, gengur til sætis á kínverska þinginu í morgun. AFP/Noel Celis

Vladimír Pútín Rússlandsforseti óskaði honum til hamingju með þriðja kjörtímabilið í morgun og fagnaði öflugri tengslum landanna tveggja.

„Kæri vinur, innilegar hamingjuóskir með endurkjör þitt,“ sagði Pútín í yfirlýsingu.

„Rússland metur mjög persónulegt framlag þitt til að styrkja tengsl...og samstarf á milli okkar þjóða.“

Pútín á skrifstofu sinni í gær.
Pútín á skrifstofu sinni í gær. AFP/Mikhail Klimentyev
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert