Ætlar ekki að leysa upp þingið

Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði stuðningsmönnum sínum í dag að ríkisstjórn hans muni starfa áfram og að hann ætli ekki leysa upp þingið.

Í gær felldi franska þingið van­traust­stil­lögu stjórn­ar­and­stöðunn­ar gegn ríkisstjórn Macron. Til­lag­an var lögð fram í kjöl­far þess að hækk­un eft­ir­launa­ald­urs úr 62 ára í 64 ára varð að lög­um á fimmtu­dag, án þess að þingið hafi kosið um laga­breyt­ing­una. 

Lögreglan í París handtók 234 einstaklinga í gærkvöldi eftir að niðurstöður atkvæðagreiðslu þingsins varð ljós. Hópar kveiktu í ruslatunnum, hjólum og fleiru. 

Einnig brutust út mótmæli í borgunum Dijon og Strasbourg, og þá lokuðu mótmælendur einnig vegum víða um landið. 

Emmanuel Macron Frakklandsforseti.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti. AFP/Yves Herman

Macron sagði stuðningsmönnum sínum á fundi í morgun í forsetahöllinni að hann ætli heldur ekki að boða til þjóðaratkvæðisgreiðslu vegna lagabreytingarinnar, líkt og stjórnarandstæðingar hans hafa kallað eftir. 

Þess í stað myndi hann ræða við sína menn næstu vikur um hvernig breyta mætti um aðferð og útfærslur.

Á morgun klukkan 13 á staðartíma mun Macron flytja sjónvarpsávarp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert