Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, er á leið til Úkraínu í óvænta heimsókn.
Ríkismiðill Japan, NHK, greindi frá því að Kishida hafi sést í borginni Przemysel í Póllandi þaðan sem margir þjóðarleiðtogar hafi tekið lest til Úkraínu.
Mikill þrýstingur hefur verið á að forsætisráðherrann að heimsækja Úkraínu þar sem hann er eini leiðtogi G7-ríkjanna sem hefur ekki farið til Kænugarðs eftir að stríðið hófst. Árlegur fundur ríkjanna verður haldinn í Japan.
Þá er Kishida fyrsti japanski forsætisráðherrann til þess að heimsækja stríðssvæði síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk.
Japan er á meðal þeirra ríkja sem hafa beitt Rússa refsiaðgerðum og stutt Úkraínumenn.