Ungverjar munu ekki standa í vegi Svía

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, leitaði svara hjá Viktor Orban, forsætisráðherra …
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, leitaði svara hjá Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands. AFP/John Thys

Ungverjaland mun ekki standa í vegi fyrir því að Svíþjóð geti gengið inn í Atlants­hafs­banda­lagið (NATO).

Sænski miðillinn Dagens Nyheter greinir frá. 

Sænska þingið samþykkti í gær að landið myndi ganga í NATO. Ung­verja­land og Tyrk­land eiga samt enn eft­ir að samþykkja aðild þeirra.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, leitaði svara hjá Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel í dag. Svíum þótti sérstakt að umsókn þeirra yrði ekki tekin fyrir á ungverska þinginu á mánudaginn, samhliða umsókn Finna. 

Orban hefur nú tjáð Kristersson að Ungverjar muni ekki standa í vegi fyrir inngöngu Svía í NATO. Að sögn Kristerssons telur Orban þó ekki þörf á að samþykkja umsókn Svía fyrr en Tyrkir geri það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert