Tólf ár fyrir brennivínsflösku

Hálffimmtugur maður í Tønsberg hlaut tólf ára dóm auk þess …
Hálffimmtugur maður í Tønsberg hlaut tólf ára dóm auk þess að vera gert að greiða börnum fórnarlambs síns sem nemur tæpum 15 milljónum íslenskra króna í bætur mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Héraðsdómur Vestfold í norska bænum Tønsberg, 100 kílómetra suður af Ósló, hefur dæmt 45 ára gamlan mann í tólf ára fangelsi fyrir að lemja 64 ára gamlan nágranna sinn þar í bænum til bana með málmstöng þar sem fórnarlambið lá í rúmi sínu.

Kveikjan að verknaðinum var brennivínsflaska sem hinn dæmdi taldi nágranna sinn, Kjell Johnny Sandberg, hafa tekið ófrjálsri hendi á heimili hins fyrrnefnda sem saknaði flöskunnar þegar hann kom til heim úr miðbæjarför 11. maí í fyrra og hugðist setjast að drykkju.

Fann hann flöskuna þá hvergi og grunaði Sandberg um græsku, tók sér stöngina í hönd, braust formálalaust inn til nágranna síns og lét höggin dynja á honum þar til hann lá örendur. Hafði maðurinn sjálfur samband við lögreglu og tilkynnti að hann hefði myrt nágranna sinn.

Flaskan inni í geymslu

Við eftirgrennslan lögreglu kom brennivínsflaskan hins vegar fljótlega í leitirnar og reyndist hafa staðið allan tímann inni í geymslu í íbúð þess sem dóminn hlaut.

Játaði maðurinn sök við réttarhöldin en kvaðst þó ekki muna eftir að hafa framið verknaðinn sjálfan enda mældist vínandi í blóði hans 2,4 prómill í kjölfar handtöku hans. Auk tólf ára fangelsis er manninum gert að greiða fjórum börnum hins látna 280.000 krónur hverju fyrir sig, jafnvirði 3,7 milljóna íslenskra króna, alls tæpar 15 milljónir í heildarbætur.

Í dóminum segir að dráp nágrannans hafi verið tilgangslaust, óskiljanlegt og bakað aðstandendum hins myrta þunga sorg. Verjandi hins dæmda hefur ekki svarað fyrirspurnum norska ríkisútvarpsins NRK um málið.

NRK

NRKII (játningin)

VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert