Breskir karlmenn beðnir að halda sig fjarri Amsterdam

Rauða hverfið í Amsterdam.
Rauða hverfið í Amsterdam. AFP/Kenzo Tribouillard

Borgaryfirvöld í Amsterdam, höfuðborg Hollands, hafa beðið breska kynlífs- og eiturlyfjatúrista að „halda sig fjarri“. 

BBC greinir frá stafrænni auglýsingaherferð borgaryfirvalda sem er miðuð að 18-35 ára gömlum breskum karlmönnum. 

Farið var í herferðina út af ímynd Amsterdam sem frjálslyndustu „partíhöfuðborgar Evrópu“. 

Auglýsingarnar einblína á áhætturnar sem fylgja óhóflegri notkun eiturlyfja og áfengis. Þær birtast fólki á samfélagsmiðlum sem leita að orðum eins og steggjaferð, ódýr hótel og „pöbbarölt“ í Amsterdam. 

BBC greinir frá því að í mörg ár hafi verið kvartað undan ölvuðum Bretum sem kasta af sér þvagi, kasta upp og hlaupa um naktir á almannafæri í borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert