Viðurkennir að refsiaðgerðir gætu haft neikvæð áhrif

Rússlandsforseti viðurkenndi í dag að refsiaðgerðir vegna innrásarinnar í Úkraínu, …
Rússlandsforseti viðurkenndi í dag að refsiaðgerðir vegna innrásarinnar í Úkraínu, gætu haft neikvæð áhrif á Rússland. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi í dag að refsiaðgerðir annarra þjóða gætu haft neikvæð áhrif á rússneskt samfélag. Hingað til hefur Pútín haldið því fram að Rússland hafi aðlagast nýjum raunveruleika og að refsiaðgerðirnar hafi ekki haft marktæk áhrif á þjóðina.  

Vestrænar þjóðir hafa beitt Rússland refsiaðgerðum eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir rúmu ári og hafa þær sérstaklega beinst að útflutningi landsins á olíu og gasi.

Á sjónvarpsútsendum fundi með ríkisstjórn, sagði Pútín atvinnuleysi aldrei hafa verið lægra í landinu og að búist væri við að verðbólga myndi lækka um fjögur prósent.

„Við þurfum að styðja og styrkja jákvæða þróun í efnahagslífi okkar“ sagði Pútín og biðlaði til ríkisstjórnarinnar að hafa hraðar hendur án ónauðsynlegra tafa og skrifræðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert