Ellefu látnir og enn fleiri slasaðir

Mikil eyðilegging átti sér stað í borginni Little Rock í …
Mikil eyðilegging átti sér stað í borginni Little Rock í Arkansas-ríki. AFP/BENJAMIN KRAIN

Að minnsta kosti ellefu eru látnir og enn fleiri slasaðir vegna fárviðris er gengur nú yfir suðurríki og miðvesturríki Bandaríkjanna.

Fjölmargir eru fastir á heimilum sínum og hefur veðrið eyðilagt fjöldann allan af byggingum og innviðum. Búist er við því að veðrið fari versnandi með deginum.

Fréttastofa CNN greinir frá þessu.

Þak leikhúss gaf sig

Óveðrið hófst í gær en þá var tilkynnt um meira en 50 hvirfilbylji í að minnsta kosti sjö ríkjum. Þar með talið í Arkansas en þar létust fimm manns í gær en að minnsta kosti 50 manns voru lagðir inn á spítala þar.

Þrír létust í ríkinu Indíana vegna storms í gærkvöldi en mörg heimili eyðilögðust og jafnframt slökkviliðsstöð.

Í Alabama lést ein manneskja en fimm slösuðust í nótt og á sama tíma lést ein manneskja í Mississippi og fjórir slösuðust. 

Þá lést einn þegar að þak leikhúss gaf sig þar sem þungarokkstónleikar fóru fram í Illinois. Fjölmennt var á tónleikunum og slösuðust tugir tónleikagesta. Fimm eru þungt haldnir.

Tjónið er töluvert.
Tjónið er töluvert. AFP/Benjamin Krain
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert