Rússar frystu bankareikninga finnska sendiráðsins

Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands.
Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands. AFP/Oliver Matthys/Pool

Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands, greindi frá því í dag að bankareikningar finnska sendiráðsins í Moskvu og finnsku ræðismannaskrifstofunnar í Sankti Pétursborg hafi verið frystir í lok apríl. 

„Reikningar finnsku sendinefndanna í Rússlandi hafa verið frystir og eru óvirkir að svo stöddu,“ sagði Haavisto á blaðamannafundi. 

Þá sagði hann að finnsk stjórnvöld séu í sambandi við rússnesk stjórnvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert