Greiða tíu milljarða í bætur vegna viðskipta Epstein

Deutsche Bank neitar sök.
Deutsche Bank neitar sök. AFP/Nicolas Maeterlinck

Deutsche Bank mun greiða 75 milljónir Bandaríkjadala, eða rúmlega tíu milljarða íslenskra króna, í bætur fyrir að hagnast af meintu mansali banda­ríska kyn­ferðisaf­brota­mann­sins og auðkýf­ing­sins, Jef­frey Ep­stein.

Ónefnt fórnarlamb sem höfðaði málið gegn Deutsche Bank í nóvember, sagði Ep­stein hafa selt sig í man­sal yfir 15 ár tíma­bil, frá því að hún flutti til New York árið 2003. Í sum­um til­fell­um greiddi Ep­stein henni í pen­ing­um fyr­ir kyn­lífs­at­hafn­ir og er bankinn sagður hafa vitað af ólöglegu athæfi hans. 

Deutsche Bank neitar sök og þá neitaði talsmaður bankans að tjá sig um málið. 

Í nóvember var einnig höfðað mál gegn bankanum JP Morgan Chase. Bankinn hætti viðskiptum við Epstein árið 2013. 

Ep­stein svipti sig lífi í fanga­klefa í New York árið 2019 en hann beið þá eig­in rétt­ar­halda.

Jeffrey Ep­stein svipti sig lífi í fanga­klefa í New York …
Jeffrey Ep­stein svipti sig lífi í fanga­klefa í New York árið 2019 en hann beið þá eig­in rétt­ar­halda. AFP/Palm Beach County Sheriff's Department
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert