Obama fær ekki að heimsækja Rússland

Barack Obama, fyrrum forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, fyrrum forseti Bandaríkjanna. AFP/Ben Stansall

Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er á meðal 500 Bandaríkjamanna sem hefur nú verið bannað að heimsækja Rússland.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Rússlands segir að þetta sé gert „til að bregðast við ítrekuðum and-rússneskum refsiaðgerðum ríkisstjórnar Bidens“.

Bandaríkin tilkynntu í dag refsiaðgerðir gagnvart hundruðum fyrirtækja og einstaklinga með tengsl við Rússland vegna stríðs Rússa í Úkraínu.

Spjallþáttastjórnendur

„Washington ætti að vera búið að læra fyrir löngu að hverju einasta fjandsamlegu skrefi gegn Rússlandi verði svarað,“ segir í tilkynningunni.

Á meðal þeirra 500 Bandaríkjamanna sem bann Rússa á við um eru spjallþáttastjórnendurnir Stephen Colbert, Jimmy Kimmel og Seth Meyers.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert