DeSantis hyggur á framboð

Ron DeSantis er sagður ætla að tilkynna um framboð í …
Ron DeSantis er sagður ætla að tilkynna um framboð í kvöld. AFP/Cheney Orr

Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, mun tilkynna annað kvöld um að hann sækist eftir tilnefningu frá Repúblikanaflokknum að verða frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum á næsta ári í Bandaríkjunum

Bandarískir miðlar greina frá þessu og segja DeSantis muni tilkynna í framboð í samræðum við auðkýfinginn Elon Musk á Twitter Space-viðburði annað kvöld. 

DeSantis er talinn geta verið helsti keppinautur Donalds Trumps, fyrrverandi forseta. Báðir eru þeir í flokk Repúblikana. 

Fréttastofa Fox News tísti um viðburðinn á Twitter Space í kvöld og endurtísti Musk því til 140 fylgjenda sinna. Space er vettvangur þar sem notendur Twitter geta talað saman í gegnum hljóðrás. 

Elon Musk og Ron DeSantis munu ræða saman á Twitter …
Elon Musk og Ron DeSantis munu ræða saman á Twitter Space í kvöld. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert