Vill réttarhöld yfir Assad

Assad á fundi Arababandalagsins.
Assad á fundi Arababandalagsins. AFP

Rétta ætti yfir sýrlenska forsetanum Bashar al-Assad vegna „hundruð þúsunda dauðsfalla” og „notkunar á efnavopnum” í borgarastríðinu í landinu. Þetta sagði Catherine Colonna, utanríkisráðherra Frakklands, í sjónvarpsviðtali.

Spurð í viðtalinu hvort hún vildi að réttað yrði yfir Asssad sagði hún „svarið er já”. Hún bætti við að baráttan gegn glæpum sé hluti af franskri utanríkisstefnu.

Catherine Colonna fyrr í þessum mánuði.
Catherine Colonna fyrr í þessum mánuði. AFP/Emmanuel Dunand

Assad var í síðustu viku viðstaddur leiðtogafund Arababandalagsins eftir að hafa verið bannaður hjá alþjóðlegu stofnuninni í áratug.

Þrátt fyrir það sagði Colonna að frönsk stjórnvöld ætli ekki að breyta stefnu sinni í garð sýrlenska forsetans.

„Við megum ekki gleyma því hver Bashar al-Assad er. Hann er leiðtogi sem hefur verið óvinur síns eigin fólks í rúm 10 ár,” sagði hún og bætti við að ekki væri í pípunum að aflétta refsiaðgerðum ESB gegn stjórnvöldum í Sýrlandi á meðan hlutirnir héldust óbreyttir þar.

„Ég held að það sé undir honum komið að gera breytingar, það er ekki undir Frakklandi komið að breyta okkar viðhorfi,” sagði Colonna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert