Leitinni að Madeleine lokið

Leitinni að Madeleine McCann í Portúgal er lokið.
Leitinni að Madeleine McCann í Portúgal er lokið. AFP/Filipe Amorim

Leitarmenn á vegum saksóknara í Þýskalandi hafa lokið leit við uppistöðulón í suðurhluta Portúgal. Leitað var að Madeleine McCann, breskri stúlku, sem hvarf á Algarve árið 2007. 

Leitarflokkurinn tók niður tjöld sín síðdegis í dag. Fréttastofa Reuters greinir frá því að leitin, sem stóð yfir í þrjá daga, hafa verið tíðindalítil. Þó hafi nokkrir pokar af jarðvegi verið fluttir í burtu til rannsóknar. 

Þýsk stjórnvöld hafa nafngreint mann sem sætir rannsókn vegna hvarfs McCann. Heitir hann Christian Brueckner og hafði áður verið sakfelldur fyrir barnaníð og fíkniefnasölu. Er hann nú í fangelsi í Þýskalandi, sakfelldur fyrir að nauðga 72 ára gamalli konu á Algarve. 

Hefur hann neitað að vita nokkuð um mál McCann.

Alls hafa um 50 lög­regluþjón­ar og portú­galsk­ir slökkviliðsmenn tekið þátt í leit­inni.

Portú­galsk­ir fjöl­miðlar sögðu í gær að tek­in hefðu verið jarðsýni á svæðinu, auk þess sem leif­ar af fatnaði fund­ust. Enn hef­ur þó ekk­ert fund­ist sem teng­ist mál­inu.

Lög­regl­an leitaði á sama svæði árið 2008 og fundu kafar­ar þá ein­göngu dýra­leif­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert