Einn látinn eftir eldsvoða á hjúkrunarheimili

Ekki er vitað um eldsupptök.
Ekki er vitað um eldsupptök. AFP

Sjö voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði á hjúkrunarheimili í borginni Bollnäs í Svíþjóð. Einn þeirra er látinn, en ekki er vitað um líðan hinna.

Tilkynning um eldinn barst klukkan fimm í morgun að staðartíma. Þegar lögregla kom á vettvang var um mikinn eld að ræða og hófst þá rýming hússins.

Sænska ríkisútvarpið SVT greinir frá. Ekki er vitað um eldsupptök.

Lögreglufulltrúinn Magnus Jansson Klarin sagði við SVT að um alvarlegt atvik væri að ræða og að margir íbúar hefðu verið fluttir af hjúkrunarheimilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert