Harðir bardagar geisa nú milli Úkraínu og Rússlands í Saporísja-héraði í Úkraínu. Greint hefur verið frá því að her Úkraínu hafi undirbúið gagnsókn síðustu daga og virðist hún nú hafin.
„Eins og stendur geisa harðir bardagar á svæðinu mikil Orekhovo og Tokmak,“ sagði Vladimír Rogov, embættismaður Rússa á hernumdu svæði í Úkrainu, á Telgram í morgun.
Rússar segja varnir sínar halda enn sem komið er. AFP-fréttastofan gat ekki staðfest frásögn Rússa.
Í færslu úkraínska hersins á Facebook segir að her landsins sé í vörn í Saporísja-héraði. Þar segir að fjórum eldflaugarskotum hafi verið skotið á mikilvæga innviði hersins og að tíu drónar hafi einnig gert árás.
Einn almennur borgari lést í árásum Rússa í nótt og fjöldi særðist. Voru árásirnar gerðar í Zyvahel að því er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC.
Í umfjöllun BBC segir að Úkraínumenn sæki fram á nokkrum svæðum, ekki bara í Saporísja-héraði heldur einnig í nágrenni Bakhmút-borgar og í Dónetsk-héraði.