Alríkisdómari hafnaði fyrr í kvöld beiðni Hunter Bidens, sonar Joe Bidens Bandaríkjaforseta, um að fá að sleppa því að mæta í eigin persónu í fyrirtöku 3. október.
Lögfræðiteymi Hunter Bidens hafði reynt að fá það í gegn að Hunter yrði viðstaddur fyrirtökuna í gegnum fjarfundarbúnað og vísuðu þeir til „fjárhagslegra áhrifa“ sem það myndi hafa á stjórnvöld og skipulagóreiðuna sem yrði í miðbænum ef hann myndi mæta í persónu.
Lögmenn Hunter Bidens hafa þegar sent bréf á dómarann, Cristopher Burke, þess efnis að Hunter hyggist lýsa yfir sakleysi sínu vegna meintra vopnalagabrota. Er honum gefið að sök að hafa logið til um edrúmennsku sína þegar hann keypti byssu í októbermánuði árið 2018.
Christopher Burke, sagði að sonur forsetans „ætti að fá sömu meðferð og allir aðrir sakborningar í réttarsalnum okkar“. Burke gaf Hunter Biden þó auka viku til að verða við kröfunni, en upphaflega átti hann að mæta 26. september.
Samkvæmt vopnalagalöggjöf í Delaware, þar sem dómstóll tekur mál Bidens fyrir, er óheimilt að bera byssu undir áhrifum fíkniefna sem og að sækja um heimild til byssukaupa á meðan neyslutímabili stendur. Viðurlögin eru allt að 25 ára fangelsi.
Biden hefur um árabil glímt við áfengis- og krakkfíkn. Er hann sagður hafa keypt sér byssu af gerðinni Colt um tveimur mánuðum eftir að hann kom úr einni af mörgum meðferðarúrræðum sem hann hefur leitað til.