Stjórnvöld í Rússlandi og á Kúbu eru „í sambandi“ eftir að lögregluyfirvöld á Kúbu handtóku menn þar í landi í tengslum við meintan mansalshring. Sagt er að hringurinn gangi út á að fá kúbanska ríkisborgara til liðs við hersveitir Rússa í Úkraínu.
Þetta segir Viktor Koronelli, sendiherra Rússlands í Kúbu, en fyrr í mánuðinum tilkynnti kúbanska utanríkisráðuneytið að þarlend yfirvöld hafi svipt hulunni af mansalshringnum. Þá voru 17 handteknir í tengslum við málið.
„Stjórnvöld eru að vinna í þessu,“ sagði Koronelli við blaðamenn í Havana í dag. Bætti hann við að hann væri ekki meðvitaður um hversu margir Kúbverjar væri í Rússlandi.
Bruno Rodriguez, utanríkisráðherra Kúbu, segir í færslu á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, að stjórnvöld vinni í þessum máli af fullum þunga.
„Kúba á ekki aðild að stríðsátökunum í Úkraínu,“ segir ráðuneytið. Bætt er við að það muni grípa til viðeigandi aðgerða gegn öllum þeim sem tengjast mansali í þeim tilgangi að fá kúbanska ríkisborgara til að grípa til vopna gegn Úkraínumönnum.
Fram kemur í umfjöllun AFP að stjórnvöld í Rússlandi hafi ekki tjáð sig um málið.
Stjórnvöld í Rússlandi og á Kúbu hafa eflt stjórnmálasamband ríkjanna nýverið. Í lok síðasta árs átti Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Í júní átti síðan Alvaro Lopez Miera, varnarmálaráðherra Kúbu, fund með rússneska starfsbróður sínum, Sergei Shugu.