Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur hætt við samkomulag við Khalid Sheikh Mohammed, skipuleggjanda árásarinnar á Tvíburaturnana 11. september 2001. Á miðvikudag var frá því að Mohammed hafi játað sök gegn því að verða ekki dæmdur til dauða.
Samkomulagið var gagnrýnt af aðstandendum fórnarlamba árásarinnar og háttsettum repúblikönum.
„Ég hef ákveðið, í ljósi mikilvægis ákvörðunar um að gera samkomulag við ákærða áður en réttarhöld hefjast... ábyrgð slíkrar ákvörðunar á að liggja hjá mér,“ sagði í minnisblaði Austin sem var sent Susan Escallier, sem hefur yfirumsjón með málinu gegn Mohammed.
„Ég afturkalla því samkomulagið sem þú undirritaðir þann 31. júlí 2024.“
Mohammed var handtekinn af Bandaríkjamönnum í Pakistan árið 2003. Frá árinu 2006 hefur hann dvalið í Guantanamo–fangelsinu.