Starfsmaður Marels lést í flugslysinu í Brasilíu á föstudaginn. Þetta staðfestir Kristinn Daníel Lee Gilsdorf, upplýsingafulltrúi Marels, í samtali við mbl.is.
Maðurinn var brasilískur og bjó í Brasilíu. Vísir greindi fyrst frá.
Samkvæmt vefsíðu Marels hefur fyrirtækið starfstöðvar í yfir 30 löndum og eru starfsmenn yfir 7.500 talsins. Fyrirtækið hefur meðal annars starfstöð í Brasilíu.
Farþegaflugvél hrapaði í íbúðarhverfi í Sao Paulo á föstudaginn og létust 62 í slysinu. Búið er að sækja lík allra hinna látnu.
Enginn íbúi á svæðinu slasaðist þegar flugvélin hrapaði í íbúðarhverfið.
Sérfræðingar sem rannsaka slysið segja vísbendingar um að ísing á vængjum vélarinnar hafi valdið slysinu. Flugmálayfirvöld segja að bráðabirgðaniðurstöður um orsök slyssins eigi að liggja fyrir á næstu 30 dögum.