Edmundo González, frambjóðandi Lýðræðisbandalagsins, helsta stjórnarandstöðuflokks Nicholás Maduro, forseta Venesúela, hefur heitið því að halda ótrauður áfram baráttunni í þágu lýðræðis og frelsis.
„Baráttan heldur áfram,“ sagði González.
González lenti á Spáni fyrr í dag þar sem hann hefur fengið pólitískt hæli eftir að yfirvöld í Venesúela gáfu út handtökuskipun á hendur honum.
Skipunin var gefin út eftir að stjórnarandstaða landsins dró í efa niðurstöður kosninganna í júlí sem tryggðu Maduro forsetastólinn að nýju þvert á útgönguspár og fylgiskannanir.
Fjölmiðlateymi González birti hljóðupptöku með skilaboðum hans fyrr í dag. Hann kvaðst vera fullviss þess að geta snúið aftur til heimalandsins.
Hann sagði baráttuna í þágu frelsis og lýðræðis í Venesúela halda áfram á næstunni.
Fljótlega eftir lendingu á Spáni sótti González fund Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, og flokksmanna Sósíalistaflokksins á Spáni.
Sánchez sagði við tilefnið González vera hetju sem Spánn gæfi ekki upp á bátinn.
Delcy Rodríguez, varaforseti Venesúela, sagði yfirvöld hafa gefið grænt ljós á brottflutning González úr landinu.
Tarek William Saab, ríkisaksóknari Venesúela, sagði að með flótta González úr landinu væri farsakenndu leikriti lokið.
Saab sagði þó ekki hvort að rannsókn á meintum glæpum González væri lokið af hálfu ríkisins.