10 létust í skotárás á bar

Mestur hluti ofbeldis í ríkinu er tengt eiturlyfjasmygli og glæpagengjum. …
Mestur hluti ofbeldis í ríkinu er tengt eiturlyfjasmygli og glæpagengjum. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP

Tíu létust og að minnsta kosti sjö til viðbótar særðust í skotárás sem var gerð á bar í borginni Queretaro í Mexíkó.

Að sögn yfirvalda hófu menn í jeppabifreið skothríð fyrir utan barinn.

Einn hefur verið handtekinn en kveikt var í bílnum á vettvangi.

Að minnsta kosti þrjár konur létust í árásinni sem er nú til rannsóknar.

Queretaro–borg í samnefndu héraði er talin vera ein af öruggustu borgum Mexíkó. Hún er um 200 kílómetrum frá Mexíkóborg.

Meira en 450 þúsund manns hafa verið myrtir í Mexíkó frá árinu 2006. Mestur hluti ofbeldis í ríkinu er tengdur eiturlyfjasmygli og glæpagengjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka