Herforingja á eftirlaunum falið að koma á friði í Úkraínu

Keith Kellog hefur áður lagt til að nota hernaðarstuðning Bandaríkjanna …
Keith Kellog hefur áður lagt til að nota hernaðarstuðning Bandaríkjanna sem vogarafl til að sannfæra Úkraínumenn í að ganga að samningaborðinu. AFP

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur tilnefnt hinn áttræða Keith Kellogg sem erindreka sinn til Úkraínu og Rússlands. Kellog er herforingi á eftirlaunum og dyggur stuðningsmaður nýkjörna þjóðarleiðtogans.

Helsta verkefni Kellogs yrði að efna loforð Trumps um að binda skjótan enda á Úkraínustríðið sem hefur staðið yfir í rúmlega tvö og hálft ár. 

„Það gleður mig að tilnefna Keith Kellog hershöfðingja til að starfa sem aðstoðarmaður forseta og sérstakur erindreki til Úkraínu og Rússlands,“ segir í yfirlýsingu frá Trump á samfélagsmiðlum.

„Keith á prýðilegan hernaðar- og viðskiptaferil að baki,“ bætir hann við og nefnir að Kellog hafi meðal annars gegnt þjóðaröryggisstörfum í fyrstu ríkisstjórn Trumps.

Vill nýta hernaðarstuðning sem vogarafl

Í kosningabaráttu sinni lofaði Trump því að hann myndi með auðveldi ná að binda enda á stríðið í Úkraínu. Sagðist hann geta annast milligöngu í friðarviðræðum milli Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta.

Bandaríkin hafa veitt Úkraínu tæplega 60 milljarða bandaríkjadala (um 8.200 ma.kr.) frá upphafi stríðs í febrúar 2022.

Andstæðingar Trumps hafa varað við því að repúblikaninn muni líklega notfæra sér áframhaldandi hernaðarstuðning Bandaríkjanna sem vogarafl til að sannfæra Úkraínumenn um að samþykkja kröfur Pútíns – að Úkraínumenn gefi upp þau landsvæði sem Rúss­ar hafa lagt und­ir sig í inn­rás­inni – eða samþykki að ganga ekki í Atlantshafsbandalagið.

Kellogg hefur einmitt lagt svipaða hugmynd til í ritgerð er hann var meðhöfundur á og kom út á þessu ári.

„Bandaríkin myndu halda áfram að vopna Úkraínu og styrkja varnir hennar til að sjá til þess að Rússar fái enga frekari landvinninga og muni ekki gera árás aftur eftir að vopnahlés- eða friðarsamningar hafa náðst,“ skrifaði Kellogg í ritgerðinni, sem var gefin út af hugveitunni „America First“ sem var stofnuð af stuðningsmönnum Trumps.

„Hernaðarstuðningur Bandaríkjanna til frambúðar mun aftur á móti krefjast þess að Úkraínumenn taki þátt í friðarviðræðum við Rússa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert