„Mjög stór fundur“ bókaður með Írönum á laugardag

Trump sagði að það yrði „rosa frábært“ ef samningur um …
Trump sagði að það yrði „rosa frábært“ ef samningur um kjarnavopn næðust á fundinum á laugardag. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stjórnvöld í Washington eigi „mjög stóran fund“ áætlaðan með Írönum á laugardag.

„Við eigum í beinum samskiptum við Íran,“ sagði Trump einnig á blaðamannafundi með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kvöld.

Leiðtogarnir ræddu þar helst tollastríð Trumps og stríð Ísraels á Gasa.

Íranir gætu lent „í vandræðum“

Þá voru Íranir og fylgitungl þeirra einnig til umræðu þar sem Bandaríkin vilja koma í veg fyrir að Íranir afli sér kjarnorkuvopna.

Í því samhengi minntist Trump á að það yrði „rosa frábært“ ef samningur um kjarnavopn næðist á téðum fundi en tók einnig fram að Íran yrði „í vandræðum“ ef enginn samningur næðist.

Í gær sagði íransk­ur er­ind­reki að stjórn­völd myndu ekki verða við ósk Trumps um beinar viðræður á milli hans og Ayatollah Ali Khamenei, æðsta klerks í klerka­veldi Írans, um kjarnorku­áætlan­ir lands­ins.

Tilefni blaðamannafundarins var heimsókn Netanjahús í Hvíta húsið. Var hún skipulögð um leið og Donald Trump lagði sérsniðna tolla á um 60 lönd í síðustu viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert