Stefnum í „efnahagslegan kjarnorkuvetur“

Ackman hefur fordæmt tollana harðlega.
Ackman hefur fordæmt tollana harðlega. Samsett mynd

Bandamenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á borð við Elon Musk og Bill Ackman gjalda varhug við tollum Trumps.

Elon Musk, sem hefur unnið mjög náið með forsetanum, hefur ekki beinlínis fordæmt tollana en í dag deildi hann myndskeiði af hagfræðingnum Milton Friedman útskýra af hverju fríverslun væri góð og kosti þess að flytja inn vörur.

Á ítölskum stjórnmálaviðburði á laugardaginn hvatti Musk til aukinnar fríverslunar og að Evrópa og Bandaríkin ættu að fella niður alla tolla.

Óhóflegir tollar

Fjár­fest­ir­inn Bill Ackman, sem studdi Trump í kosningabaráttunni á síðasta ári, hvatti til 90 daga hlés og varaði við „efna­hags­leg­um kjarn­orku­vetri“.

Í færslu sinni á X tók Ackman undir rök Trumps um að alþjóðlega viðskiptakerfið væri Bandaríkjunum í óhag. En hann sagði að tollar Trumps væru „gríðarlegir og óhóflegir“ og gerðu ekki greinarmun á vinum og óvinum Bandaríkjanna.

„Forsetinn hefur tækifæri á mánudaginn til að kalla eftir hléi og fá tíma til að leiðrétta ósanngjarnt tollakerfi. Að öðrum kosti stefnum við í sjálfskapaðan efnahagslegan kjarnorkuvetur og ættum að fara að búa okkur undir það versta,“ sagði Ackman.

Mun draga úr hagvexti

Í dag tók Trump fyrir hugmynd Ackmans um að fresta gildistöku tollana.

For­stjóri JPMorgan Chase, Jamie Dimon, varaði einnig við því að toll­arn­ir gætu aukið verðbólgu og hægt á hag­vexti, nema tekið yrði á mál­inu með festu.

„Hvort að þessi matseðill af tollum muni valda samdrætti er óljóst, en hann mun hægja á hagvexti,“ skrifaði Dimon í bréfi til hluthafa. 

Jamie Dimon, forstjóri JPMorgan Chase.
Jamie Dimon, forstjóri JPMorgan Chase. AFP

Axios

Forbes

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert