Vill semja við „alla“ en engin pása í sjónmáli

„Við ætlum að ná sanngjörnum samningum og góðum samningum við …
„Við ætlum að ná sanngjörnum samningum og góðum samningum við alla,“ sagði Trump í dag á sameiginlegum blaðamannafundi með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að semja við aðrar þjóðir um að ná „sanngjörnum samningum“ í alþjóðaviðskiptum. Hann hyggst samt ekki setja tollana á pásu.

Ísraelsmenn hafa boðist til þess að „eyða“ viðskiptahalla milli Ísraels og Bandaríkjanna í von um að losna undan tollum Bandaríkjaforsetans.

„Við ætlum að ná sanngjörnum samningum og góðum samningum við alla,“ sagði Trump í dag á sameiginlegum blaðamannafundi með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.

„Og ef við gerum það ekki, viljum við ekkert með þá hafa. Þeir fá ekki leyfi til að taka þátt í Bandaríkjunum,“ hélt forsetinn áfram. Hann sagði einnig að „nánast hvert einasta land“ hefði óskað um að semja um betri díl. 

Önnur lönd taki Ísrael til fyrirmyndar

Netanjahú er í heimsókn í Hvíta húsinu, þar sem hann reynir m.a. að semja við Trump um að leggja vægari tolla á Ísrael. 

Ísra­el er á meðal 60 þjóða sem standa frammi fyr­ir hærri toll­um. 17% toll­ur er sett­ur á ísra­elsk­ar vör­ur í Banda­ríkj­un­um frá og með miðvikudeginum 9. apríl.

Tollarnir hafa sent hlutabréfamarkaði um víða veröld í uppnám. Á Íslandi hefur markaðsvirði skráðra hluta­bréfa á Íslandi lækkað um 381 ma. kr. síðan á fimmtu­dag­inn, að sögn Kaup­hallarinnar.

Netanjahú lofaði því að hann myndi „eyða“ öllum viðskiptahalla og losa um öll viðskiptahöft milli Bandaríkjanna og Ísraels. Sagði hann önnur lönd mega taka Ísrael til fyrirmyndar. Hann bætti við að Ísrael myndi losa sig við tollana „fljótlega“.

Tollar Ísraels gagnvart Bandaríkjunum yrðu því fjarlægðir. En Trump kom sér undan því að svara hvort tollar á Ísrael yrðu fjarlægðir á móti, og vísaði hann til þess að Bandaríkin hefðu veitt Ísrael „milljarða og milljarða af Bandaríkjadölum“.

Netanjahú er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem óskar persónulega eftir slíku við Trump frá því að allsherjartollavegferð forsetans hófst. Þetta er í annað sinn sem leiðtog­arn­ir funda í Hvíta hús­inu síðan Trump tók við embætti. Síðast heim­sótti Net­anja­hú Hvíta húsið í fe­brú­ar og ræddu þeir þá meðal ann­ars stríðið á Gasa.

0% tilboð ESB dugi ekki

Evrópusambandið hafði stungið upp á núll-fyrir-núll tollum á innflutta bíla. En Trump sagði það ekki duga.

Auk þess hvatti forsetinn ESB til að kaupa orku frá Bandaríkjunum og hélt því fram að Bandaríkin hefðu meiri orku en allir aðrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert