Beiting hervalds gæti orðið óhjákvæmileg

Donald Trump Bandarikjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, takast í …
Donald Trump Bandarikjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, takast í hendur við Hvíta húsið í gær. AFP/Brendan Smialowski

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir óhjákvæmilegt að beita Íran hervaldi ef viðræður milli stjórnvalda í Teheran og Washington um kjarnorkuáætlun Írana dragast á langinn.

„Við erum sammála um að Íran fái ekki að ráða yfir kjarnavopnum,“ sagði Netanjahú í myndbandsávarpi á samfélagsmiðlum í dag, í kjölfar fundar síns við Donald Trump Bandaríkjaforseta.

„Því er hægt að ná fram með samkomulagi en aðeins ef þeir fara inn og sprengja upp aðstöðuna og eyðileggja búnað undir umsjón Bandaríkjamanna,“ sagði forsætisráðherrann.

„Ef viðræður dragast á langinn, verður beiting hervalds óhjákvæmileg.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert