Dómari hótar að kæra Trump fyrir að óhlýðnast

Boasberg reyndi að setja Trump-stjórninni stólinn fyrir dyrnar þegar upp …
Boasberg reyndi að setja Trump-stjórninni stólinn fyrir dyrnar þegar upp komst um aform áform ríkisstjórnarinnar. Hún hlýddi honum samt ekki. AFP

Alríkisdómari í Washington hótaði í dag að kæra Trump-stjórnina fyrir að óhlýðnast fyrirmælum sínum um að stöðva flugvélar með flóttamenn frá Venesúela frá því að vera sendar til El Salvador.

New York Times greina frá en í 46 blaðsíðna úrskurði dómarans James E. Boasber kemur fram að hann myndi hefja málarekstur gegn ríkisstjórninni ef Hvíta húsið myndi ekki, innan við næsta mánuð, framfylgja úrskurðinum: að gefa tugum venesúelskra manna, sem sendir voru til El Salvador á grundvelli stríðslaga frá 18. öld, kost á að kæra brottvísun sína.

„Dómurinn kemst ekki að slíkum niðurstöðum léttlega eða í flýti; heldur hefur hann veitt verjandanum mikið rými til að rétta úr eða útskýra sínar gjörðir. Engin svör hafa verið fullnægjandi,“ skrifar Basberg, en hann er dómarinn sem reyndi að setja Trump-stjórninni stólinn fyrir dyrnar þegar upp komst um áformin.

Lög frá 1798

Hinn 14. mars gaf Don­ald Trump út for­seta­til­skip­un þar sem vísað var til laga­setn­ing­ar frá 1798 með það fyr­ir stafni að vísa liðsmönn­um venesú­elska glæpa­geng­is­ins Tren de Aragua (TdA) úr landi. Sagði Trump Venesúela­menn­ina ógna Banda­ríkja­mönn­um.

Lagagreinin (1798 Alien Enemies Act) kveður á um að þegar Banda­rík­in eru í stríði eða að verjast inn­rás megi yf­ir­völd­ hand­sama ​og senda úr landi án málsmeðferðar alla borg­ara „óvinaþjóðar­inn­ar“ sem hafa náð 14 ára aldir. Lög­unum hafði aðeins verið beitt þris­var áður í Banda­ríkja­sög­unni, meðal ann­ars í fyrri og seinni heimstyrj­öld­inni.

Hótun Boasbergs dómara kemur aðeins degi eftir að Paula Xin­is, alríkisdómari í öðru máli er varðar téðar brottvísanir, tilkynnti að hún væri að hefja rannsókn á því hvort Hvíta húsið hefði brotið í bága við úrskurð hæstaréttar Bandaríkjanna.

Hún gefur Trump-stjórninni tvær vikur til að veita svör við því hvers vegna hinum 29 ára Kilm­ar Abrego Garcia var ranglega vísað úr landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert