15 ára sænskur drengur var handtekinn í Sydney í Ástralíu á miðvikudag sakaður um að nota dulkóðuð samskiptaforrit til að ráða leigumorðingja í Svíþjóð og Danmörku.
Drengurinn er grunaður um að hafa notað dulkóðað samskiptaforrit „til að koma af stað áætlunum um erlend leigumorð fyrir hönd fjölþjóðlegra glæpasamtaka,“ sagði í sameiginlegri yfirlýsingu lögreglunnar í Ástralíu, Danmörku og Svíþjóð.
Drengurinn gæti átt yfir höfði sér tvöfaldan lífstíðardóm, verði hann fundinn sekur.