Hútar segja 13 látna í árás Bandaríkjahers

Bandaríski herinn hefur látið sprengjum rigna yfir Jemen nær daglega …
Bandaríski herinn hefur látið sprengjum rigna yfir Jemen nær daglega síðan 15. mars. Í dag sprengdu herinn upp Ras Issa-höfnina. AFP

Þrettán létust í loftárás Bandaríkjanna á olíuhöfnina Ras Issa í Jemen að sögn uppreisnarmanna Húta í landinu.

Segja þeir 30 mann hafa særst í árásinni. 

Bandaríkjaher gerði loftárás á Ras Issa-höfnina í dag. Segir herinn árásina hafa verið gerða til að hindra flutning á olíu til Húta. 

Herin kveðst hafa eyðilagt höfnina en hann hefur gert loftárásir á Jemen nær daglega síðan um miðjan marsmánuð. Segja talsmenn Bandaríkjahers árásirnar gerðar til þess að koma í veg fyrir árásir Húta á flutningaskip og önnur skip á Rauðahafi og Adenflóa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert