Skotárás í háskóla í Flórída

Lögreglan í Tallahassee í Flórída hefur girt af svæðið í …
Lögreglan í Tallahassee í Flórída hefur girt af svæðið í kringum Ríkisháskóla Flórída í borginni og leitar nú byssumannsins. mbl.is/Hjörtur

Sex manns eru særðir eftir skotárás í Ríkisháskóla Flórída í Tallahassee í Bandaríkjunum. Voru þeir allir fluttir á sjúkrahús.

Nemendum skólans hefur verið sagt að halda sig innandyra á meðan lögregla leitar að árásarmanninum á háskólasvæðinu. Lögregla hefur girt svæðið af. 

Allir sex eru alvarlega særðir, en ástand eins er mjög alvarlegt að því er talsmaður Tallahassee Memorial-sjúkrahússins sagði við AFP-fréttaveituna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert