Verkföll geisa á Kanaríeyjum

Verkföll geisa meðal hótelstarfsmanna á Kanaríeyjum.
Verkföll geisa meðal hótelstarfsmanna á Kanaríeyjum. Ljósmynd/Aðsend

Hótelstarfsmenn á fjórum eyjum Kanaríeyja, þar á meðal Tenerife, eru nú í verkfalli. Verkföllunum er ætlað að standa yfir í dag og á morgun. Canarian Weekly greinir frá.

Verkföllin hófust nú í morgun og hófu hótelstarfsmenn í kjölfarið að fjölmenna fyrir utan hótelin og viðhafa þar hávær mótmæli.

Þetta kemur í kjölfar þess að fulltrúar atvinnurekanda lögðu fram tillögu að kjarasamningi sem hótelstarfsmenn töldu ófullnægjandi. 

Skylda að sinna lágmarksþjónustu

Yfirvöld á Kanaríeyjum hafa þó komið í veg fyrir það með lagasetningu að hótelstarfsmenn geti farið í allsherjarverkfall.

Þeim ber skylda til þess að sinna lágmarksþjónustu er kemur að meðal annars þrifum og gestamóttöku. Stéttarfélög hafa gagnrýnt þetta og talið þetta brjóta á grundvallarrétti starfsmannanna til þess að grípa til verkfallsaðgerða. 

Verkföllin munu koma til með að hafa víðtæk áhrif en mikill fjöldi ferðamanna flykkist til eyjanna að staðaldri og þá sérstaklega yfir páskana. Þess má geta að um fimmtíu þúsund Íslendingar sóttu eyjarnar heim á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert