Hútar hafa nú tilkynnt um að fjöldi látinna eftir árás Bandaríkjahers á olíuhöfnina Ras Issa í Jemen sé kominn í 74.
Bandaríski herinn sagði að tilgangur árásar þeirra á höfnina væri að stöðva birgðaflutning og fjármögnun til Húta.
Um er að ræða mannskæðustu árás Bandaríkjamanna frá því herinn hóf auknar árásir á uppreisnarmenn Húta um miðjan síðasta mánuð.
Að minnsta kosti 171 er særður eftir árásina, að sögn talsmanns heilbrigðisráðuneytis Húta, Anees Alasbahi.