Hætta friðarviðræðum ef þeim miðar ekki áfram

„Við verðum að ákveða nokkuð fljótt núna – og ég …
„Við verðum að ákveða nokkuð fljótt núna – og ég er að tala um nokkra daga – hvort þetta sé geranlegt að ekki,“ segir Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. AFP

Bandaríkin munu gefast upp á að semja um frið milli Úkraínu og Rússlands nema skýr merki sjáist um að vopnahlé geti náðst.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varar við þessu. Hann segir að Bandaríkin vilji hjálpa að binda enda á innrásarstríð Rússa, en jafnframt að þau vildu snúa sér að öðru ef ekki sæjust tafarlaus merki um framfarir.

„Við ætlum ekki að halda þessari tilraun áfram vikum eða mánuðum saman,“ sagði utanríkisráðherrann, sem bætti við að Bandaríkin hefðu „önnur forgangsmál“ sem þau þyrftu að einbeita sér að.

Ummælin lét hann falla aðeins nokkrum stundum eftir að Úkraínumenn tóku fyrsta skrefið að undirskrift nýs samkomulags sem myndi tryggja Bandaríkjamönnum aðgang að jarðmálmum í Úkraínu með það fyrir stafni að setja fjárfestingarsjóð á laggirnar til að fjármagna endurbyggingu Úkraínu.

Frá Karkív í morgun, þar sem tveir eru sagðir látnir …
Frá Karkív í morgun, þar sem tveir eru sagðir látnir og 27 særðir eftir árásir Rússa í nótt. AFP

Ég er að tala um nokkra daga

Í framhaldi af fundi með Evrópuleiðtogum í París í gærkvöldi sagði Rubio í dag við blaðamenn: „Við verðum að ákveða nokkuð fljótt núna – og ég er að tala um nokkra daga – hvort þetta sé geranlegt eða ekki.“

„Ef það er ekki að fara að gerast, þá verðum við að snúa okkur að öðru,“ sagði hann.

Auk þess nefndi Rubio að það væri ljóst að erfitt væri að ná friðarsamkomulagi en að vísbendingar þyrftu að vera um að það væri hægt bráðlega.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP/Brendan Smialowski

Í gær undirrituðu Bandaríkin og Úkraínumenn viljayfirlýsingu um að ríkin vildu stofna fjárfestingasjóð um endurbyggingu Úkraínu, sem er hluti af efnahagssamkomulagi landanna.

Stefnt er á að leggja lokahönd á samkomulagið 26. apríl, samkvæmt minnisblaði sem Úkraínustjórnin gaf út.

Yfirlýsingin sagði þó ekkert um auðlindanýtingu. Eldri skjöl sem hafa lekið úr stjórnsýslunni hafa aftur á móti vísað til þess að samkomulag Bandaríkjanna nái ekki aðeins til steinefna og orkuinnviða Úkraínu, heldur myndi það einnig tryggja Bandaríkjunum aðgang að olíu og gasi Úkraínu.

Volodimír Selenski Úkraínuforseti.
Volodimír Selenski Úkraínuforseti. AFP

Hvar eru varnaglarnir?

Bandaríkin hafa enn fremur veitt því viðnám að færa stjórnvöldum í Kænugarði öryggisvarnagla til að tryggja framtíð hugsanlegs vopnahlés.

Á minnisblaðinu segir að „Bandaríska þjóðin vill fjárfesta saman með úkraínsku þjóðinni í frjálsri, fullvalda og öruggri Úkraínu,“ og að löndin tvö „vilja varanlegan frið í Úkraínu og haldgott samstarf milli þeirra tveggja þjóða og ríkisstjórna“.

Hitafundur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta í Hvíta húsinu undir lok febrúar stefndi friðarviðræðunum tímabundið í óvissu.

Júlía Svýrydenko, efnahagsráðherra Úkraínu, tilkynnti um undirritunina á X. Með færslunni birti hún myndir af sér og Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Undirritunin fór fram í gegnum fjarfundarbúnað.

Bessent sagði að enn væri unnið að smáatriðum samkomulagsins. „Að innihaldi er þetta það sem við sammæltumst um áður. Þegar forsetinn [Selenskí] var hér,“ sagði Bessent og nefndi að samkomulagið væri um 80 blaðsíður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert